28. febrúar 2009 klukkan 17:55
Jæja ætli það sé ekki komin smá tími á nýja færslu...allavega svona í tilefni af því að febrúar sé svona rétt að líða undir lok!
Á morgun eru heilar fimm vikur síðan ég kvaddi liðið á fróni og hélt úti heim..ok kannski ekki alveg en samt ég er ég búin að koma víða við...eða svona :)
Núna er ég hjá Kristínu Maríu og Pétri og verð yfir helgina...er búin að vera aðeins meira þar heldur ég ætlaði mér í byrjun...þeim nátturulega til mikilla gleði :) meina hver vill ekki hýsa Salóme!
Verkefnið komið á fullt og gengur bara vel. Ég sem sagt verð hérna fram til 22. mars og fer svo til Trondheims aftur í 5 daga! og svo er það bara Ísland! hlakka ótrúlega mikið til að koma heim og búa á einum stað! Shit ekki alveg það skemmtilegasta að búa í ferðatösku og vera að flakka á milli hehehe en maður lifir!
Svo er hann Reynsi sæti kæró að koma eftir 5 daga!!!! og vá hvað mér hlakkar til...þá eru heilar 6 vikur frá því ég sá hann shit....ógó spennó og skemmtó jójó :)
annars hef ég ekkert að segja...þannig þangað til næst, sjáumst!!!
Salóme María Ólafsdóttir
30. janúar 2009 klukkan 14:59
Þá er maður komin til Þrándheims og meira segja næstum búin að vera hérna í viku! Naumast hvað tíminn hreinlega flýgur áfram...alveg. Annars er allt gott að frétta af mínum högum. Kom á sunnudaginn til Þrándheims með hjartað í buxunum vægast sagt en...nú er það á réttum stað! Enda gekk ferðalagið vonum framar og ég komst heilu á húfi uppá gistiheimili þar sem ég dvel nú þar til 6. febrúar. Ég hef aðsetur í NTNU sem er háskólinn hérna í Þrándheimi og er að vinna með brjálað svölum og næs Kínverja. Það sem ég geri á daginn er að lesa og reikna sem er bara gaman...Allavega er ég bara hin hæst ánægðasta með ferðina til þessa og vona að það sem á eftir kemur verður jafn fínt! Svo hitti ég Ole-Svein, gaur frá Elkem á mánudaginn og ætlum við eitthvað að reikna saman. Þannig ég verð bara í því að reikna....ég er meira segja að fara forrita alveg heilan helling. Shit og ég sem þoli það ekki! Samt þetta verður bara gaman.
Svo í dag var gleði dagur! Ég semsagt tók próf 19. desember í mjög svo erfiðum áfanga og hélt að ég mundi bara rétt ná honum...en haldið ekki að mín hafi fengið 7! Og vá, hjartað í mér hamaðist alveg á milljón þegar ég var að fara skoða einkunina...shit og svo fékk ég bara 7? hvað er málið....alveg vega er ég mjög svo sátt og get nú hætt að hugsa um þetta og einbeitt mér eingöngu að verkefninu! Sem er bara svít :) Þannig ég þarf hugsanlega aldrei aftur að taka próf...hversu svalt er það...og ljúft! he!
Lítið planað um helgina....þar sem ég þekki hvorki borgina né neinn sem í henni býr finnst mér mjög svo líklegt að ég hýrist ein uppá herbergi :) Sem er sosum alltílagi...það kemur helgi eftir þessa og svo ætla ég líka að hafa svo mergjað gaman á næstu helgi að það er bara alltí lagi að vera einhverf núna :)
Annars sakna ég Reynsa míns...og mömmu og pabba og bara allra....er samt ekkert að deyja! annað væri líka bara rugl. Ég er ekki búin að vera í burtu í viku hehehe
Ætla að verja helginni næstu með KM og petri...sjá svo til með framhaldið. Hugsanlega flytt ég til Gurbit vinkonu minnar eftir helgina annars kemur þetta bara allt í ljós :)
Veit það verður bara svo gaman að lifa í ferðatösku að ég get ekki beðið!
En já....hef sosum ekkkert meira að segja. Langaði bara að láta heyra aðeins í mér....svo er klukkan líka að verða heimför héðan úr NTNU þannig....eg er reyndar búin að vera ótrúlega ekki dugleg í dag miðað við hina dagana...kannski var það einkunnin sem kom mér úr jafnvægi. Ég er jú búin að bíða eftir henni í meira en mánuð og var mjög svo stressuð um að þurfa að taka endurtektarpróf í maí...en svo er ég líka búin að vera mjög svo dugleg frá því ég kom hingað þannig þetta er alltí lagi! Enda er Kai Tang, kínverjinn alveg gáttaður á hvað ég er búin að vera dugleg...ég veit ekki alveg við hverju hann bjóst. Kannski að ég kynni bara ekkert...enda útskýrir hann allt svakalega vel fyrir mér! sem er gott og býst ekki við miklu hehehe...sem er líka fínt.
Annars ætla ég að fara að drulla mér hjem :) skrifa eitthvað þegar ég hef eitthvað að segja...
Salóme María Ólafsdóttir
20. janúar 2009 klukkan 22:22
Já held það bara...allavega finnst KM það og því þarf ég að drullast til þess að hlýða :)
Allavega er allt gott að frétta héðan, ég eldhress bara...heng heima alla daga og reyni að lesa literature og skrifa eins og engin sé morgundagurinn! Annars stundum skrepp ég uppí Tanga og fylgist með hreinsunni...það hefur reyndar eitthvað verði lítið um hreinsun uppá síðskastið...þannig ég hef bara haldið mig heima :)
Reynir er voða hress...byrjaður að vinna og svona! Held samt að hann eigi eftir að fá áfall þegar ég verð farin...meina ég er bara svo skemmtó :) en kannski kemur kallinn í heimsókn áður en ég lendi á fróni á ný...en það verður væntanlega ekkert fyrr en rétt fyrir páska! eða í kringum 6. apríl :) shit...
En áður en ég held á vit ævintýrana í Köben, þarf ég að gera mér lítið fyrir og skreppa í svona 2 vikur til Noregs...eða öllu heldur til Trondheims! Jei...not! ég held að mér eigi eftir að leiðast alveg hrikalega þarna en hey ég hef allavega nóg til þess að horfa á á flakkaranum mínum, þar sem sæti kærastinn minn er að downloada allri Friends sögunni eins og hún leggur sig og svo nokkrum seríum hér og þar :) Já hann er sætur hann Reynsi!
Annars hafa jólin og áramótin og það sem liðið hefur af janúar búið að vera fínt! Samt liðið aðeins og hratt....ég var heldur ekkert sátt við að nýtt ár væri komið og byrjaði árið með veikindum hehehe...en það kom og ekkert við því að gera! Vona bara að það verði ár gleði og skemmtunar, nýrra tíma og svona...allavega aðal plan ársins er að hafa gaman, klára skólan, byrja að leigja með Reynsa á Íslandi! og já bara vera hress og kát :) það er ekkert annað í stöðunni :)
Svo verður bara fínt að komast aðeins frá Íslandi eins og staðan er í dag...maður er alltaf jafn undrandi á ástandinu og samt er ekkert gert...enda tókum við okkur til ég, mamma og pabbi síðastliðin laugardag og fórum og mótmæltum á Austurvellli! Já burt með ríkistjórnina, hún er bara lumma....
En vá hvað mér finnst eitthvað skrýtið að ég sé bara að fara á sunnudaginn! Eitthvað svo leiðinlegt...en samt skemmtilegt. Á eftir að sakna margra...Reynirs og svona. En svo verður þetta bara liðið áður en ég veit af...þannig um að gera að njótta þess :) right!
En hugsanlega rita ég eitthver velvalin orð þegar til Trondheims er komið...þ.e.a.s. ef ég dey ekki úr leiðindum hehehe...djók!
P.S KM, þú og Pési uppá flugvöll 6. feb og knúsa mig! :) og hýsa mig yfir helgi og hafa bara gaman!!!!
Salóme María Ólafsdóttir
17. desember 2008 klukkan 23:56
..að við yfirgefum kofann! Get ekki sagt að ég eigi eftir að sakna þess að búa hér eftir allt sem hefur á okkur dunið á þessu eina og hálfa ári sem við hefum hreiðrað um okkur hér! En þar sem við erum gáfu fólk ætlum við að láta hart mæta HÖRÐU :)
En svo við víkjum nú sögunni að henni Salóme sem er alveg að fara yfir um af stressi og látum, komin með hjartslátta truflanir ofan á allt og lítur út eins og undin tuska! Já mér hlakkar gríðarlega til föstudagsins og ennþá meira til þegar við Reynir skellum hurðinni á Langelandsvej 48 í hið hinsta sinn svo ég taki dramatíkina á þetta. Ætlum meira segja að splæsa leigó uppá flugstöð þar sem það er martröð líkast að labba með allt okkar hafurtaks þessu löngu götu sem við búum við!
Annars er gott að frétta...við eða öllu heldur ég er búin að vera óð að henda drasli sem við höfum sankað að okkur en hins vegar ætlar Reynir Sveinki að fara í rauða krossinn á morgun færandi hendi með glös og bolla og annað slíkt :)
Systurnar Belinda og Begga heiðruðu okkur með nærveru sinni í gær. Voða gaman að sjá smettið á þeim...langt síðan. Ég veit ekki betur en frk. Belinda sé orðin hvorki meira né minna en MASTER í landslagsarkitekt! Og hana nú :) Get ekki sagt annað en ég öfunda hana að vera búin...eitthvað sem ég get samt látið mig hlakka til á nýju ári! Ári gleði og væntinga :)
Svo erum við boðin í mat hjá KM og P á föst og mikið hlakkar mér til! Ætlum að reyna að takamarka viðveru okkar í þessari blessuðu íbúð eins og við getum þar sem það er ekki við að vera hérna...3 stólar og já bergmál. Enda erum við að tapa gleðinni ég og Reynir og teljum ekki einungis niður dagana heldur klst þar til við fljúgum heim! Já það verður gott að koma heim :)
En ég ætla að fara lúlla...stór dagur á morgun eða svona...þarf að undirbúa mig aðeins meira fyrir ógeðið á föstudaginn! En vá ef allt gengur upp (enda er ég lúser og alger lumma ef ég næ ekki þessu prófi) þá tek ég aldrei framar próf! Mikið er nú gott að segja frá því!
En yfir og út :)
Salóme María Ólafsdóttir
01. desember 2008 klukkan 22:38
Verður maður ekki að láta aðeins heyra í sér...svona rétt áður maður dettur inná Frón.
Eins og ávallt gengur lífið sinn vanagang hérna í Danmark...lítið að ske þessa dagana. Tilvonandi flutningur og skóli á allan minn hug og því er ekki að neita að ég er byrjuð að finna fyrir stressi...hmmm ég stressuð gæti það verið! Held að Rannveig systir hafi haft rétt fyrir sér þegar hún sagði að ég þarf alltaf að hafa áhyggjur og vera að stressa mig á eitthverju...jafnvel þó svo það taki því varla! En ég er bara einu sinni svona...því er ekki að breyta.
Hins vegar til þess að létta aðeins á stressinu þá er ég löngu byrjuð að pakka og ég eiginlega bara skil ekki hvaðan þetta blessaða dót kemur! Við erum búin að búa hérna á annað ár...en að dótinu að dæma virðist það vera lengra síðan við fluttum hingað út....verð sjúkt fegin þegar við verðum búin að koma draslinu fyrir í gám á leið til Íslands og ennþá fegnari þegar við sækjum það heim! Ég er nefnilega byrjuð að hafa áhyggjur að það komi eitthvað fyrir dótið mitt á leiðinni heim....meina Pétur var ekki bein hughreistandi þegar hann sagðist oft hafa orðið vitni af þegar verið er að landa svona skipum að heilu gámarnir bara hreinlega fjúki! Ok svolítið ýkt hjá mér...hann kannski orðaði þetta aðeins öðruvísi en ég man þetta svona og núna er ég bara shit...en ef...omg öll mín kæru föt! Ok róleg....
Ég er semsagt að ljúka minni seinustu "skólaviku" í DTU...eftir helgina taka prófin við. Get samt ekki annað sagt en ég hlakki til....þessi helvítis verkefni á seinustu stundu eru alveg að gera útaf við mig...annars á ég bara eftir að skila af mér þremmur verkefnum fyrir föstudaginn og eru þau öll "nánast" búin...þannig ég veit ekki hvað ég er að hafa áhyggjur.
Ætla að gera mér glaðan dag og taka þátt í ruglinu sambandi við krónu andskotan og eyða smá pening á föstudaginn...ætla að reyna að versla nokkrar jólagjafi handa liðinu heima og kannski en bara kannski kaupa mér eitthvað smá...meina ég má...ég er búin að vera svo ógó dugleg :)
Annars er lítið að frétta...ég ætla með Reynsa á tónleika á miðvikudaginn svo hann fari ekki einn greyið :) Svo ætla ég bara að slappa af á föstudaginn og vera eldhress á laugardaginn og byrja að læra undir fyrsta prófið 10. des :)
Svo er bara að flytja 11. des og taka próf 19! shit....svo lendir maður á klakanum að kveldi 21. des og já ég get ekki lýst því hvað ég hlakka til! Þó svo allt sé á niðurleið á Íslandinu góða þá elska ég samt landið mitt því það er hvergi betra að vera en heima :) aka. á Íslandi! Held að ég hafi verið að gera Reyni hálfruglaðan á laugardagskveldið sl. þar sem ég ýtrekað lét lagið Maístjarnan á og söng með....veit ekki af hverju, kannski langaði mér bara heim :)
En kveð að sinni...og heyrumst síðar!
Salóme María Ólafsdóttir
10. nóvember 2008 klukkan 21:40
Jebb ég er bitur ung kona!
Stressið að fara með mig og ég sé ekki fyrir endan á þessu ævintýri...
Í gær voru sex vikur í heimkomu...á föstudaginn sl var 6 vikur í próflok...shit og í dag er rúmlega tvær vikur í flutninga!
Shit omæti...og ég á eftir að gera HELLING!
Er að vinna í 45% verkefni sem á reyndar ekki að skila inn fyrr en 5. des en samt...
Fengum annað verkefnið af þremmur í gær í Matlab programming áfanganum og það er GLATAÐ og skil ekkert í því! Ég og Maggi ákváðum að vera hippog kúl og hittast í dag og reyna að massa það....sáttum á rassinum frá hálf 2 til 7 og voða lítið búin að gera...ómig auma :)
Síðan má ég búast við öðru verkefni sem gildir reyndar ekki nema 20% í einum kúrs...og ég býst við að það verði ógó erfitt af fyrsta verkefninu að dæma! Shæs....
Svo 27. nóv þarf ég að skila Porfolio í enn öðrum kúrs sem gildir 50%, er reyndar búin með megnið af henni en samt...
Þar svo að fara panta bíll/van fyrir dótið okkar sem við flytjum til samskips þann 2. des....shit...það er ekki laust við að maður finni til með sjálfum sér við þessar upptalningar!
Fer svo í próf 10. des og 19. des...og svo ætla ég bara að taka róandi þar sem eftir er....shit...
Þarf reyndar að henda inn nokkrum jólagjöfum hér og þar...svo ég þurfi ekki að vera versla fram á aðfangadag jólagjafi...
Er svo með krossaða putta um að ég fái viðbótarlánið frá LÍN....lítur ekkert alltaf ve út en ég verð!
Annars var lítið gert um helgna....vorum eiginlega bara heima að chilla...ágætt en samt...langaði að gera eitthvað.
Gulli og Guðgeir kíktu við hér á Langelandsvej og átu pizzu með okkur, voru að fara á tónleika með Oasis hér í köben...gaman að sjá framan í þá :)
En þar til seinna....
Salóme María Ólafsdóttir
03. nóvember 2008 klukkan 19:39
..Nóvember! Shit já óneitanlega líður tíminn hratt.
Allt gott að frétta af okkur skötuhjúum hér í danaríki annars...og alveg nóg að gera!
Ég er byrjuð að pakka...búin að pakka heilum 5 kössum af drasli, jebb ég er kreisý :) Reynir hins vegar er öllu heldur chillaðri í þessum flutningum og vænti ég þess að hann fari að huga að þeim 2-3 dögum áður en við afhendum dótið til Samskips :) Annars er ég búin að vera ótrúlega dugleg að koma dótinu okkar á sölu, þ.e.a.s. því sem við ætlum ekki að taka með okkur heim...og ég sem hafði þvílíkar áhyggjur af því að það mundi ekki seljast! Neibb öllu heldur er slegist um að kaupa það, allavega rúmið :)
Mér hlakkar óneitanlega mikið til að koma heim um jólin, því er ekki að neita...en hins vegar ætla ég að njóta þess að búa hérna þess tæpu tvo mánuði sem eru til stefnu! Jafnvel þó svo ég verði mikið hérna á næsta ári...
Nenni ekki meir...
...p.s byrjuð að versla inn jólagjarfi!
Salóme María Ólafsdóttir
23. október 2008 klukkan 22:58
Jebb we are back...and it feels ok. Brjálað að gera í skólanum, er alveg ekki að nenna því! En...
Allt komið á hreint með verkefnið vei! Jebbserý er byrjuð að sjá fyrir endanum á þessu öllu saman. En fyrst þurfum við að flytja... Jább við erum að flytja heim um jólin, þannig við þurfum að vera ýkt mega dugleg á næstu vikum, pakka saman draslinu, selja fataskápinn, ískápinn og rúmin...jebb og kasta restinni! Plús vera í skóla...oj ég get bara ekki lýst því hversu mikið mér hlakkar til að stíga á Íslenska grund og vera laus við íbúðina!
Jahérna...anywho ætla að fara sofa
bæjó
Salóme María Ólafsdóttir
15. október 2008 klukkan 20:22
Jæja þá erum við Reynsi bráðum búin að vera heima í viku! og er sá tími búin að vera hreint út sagt æðislegur :) því auðvitað er alltaf best að vera heima :) Búin að koma mörgum á óvart...en það vissi engin að við værum á leiðinni heim nema mamma og pabbi og tengdó! ótúrlega gaman...Greyið Erla fékk alveg hjartaáfall og ég vissi ekki hvert Óli Dóri ætlaði þegar hann sá mig sl. sunnudag! hehehe
En þótt það sé voða gott að koma heim hlakkar mér til að komast aftur út og takast á við skólan! er samt búin að vera ágætlega dugleg að læra síðan ég kom en það verður samt næs að komast í rútínu og svona! Enda þegar við komum út eru bara 2 mánuðir eftir fram á áramótum :) Vei hei :)
Er að fara á fund með Járnblendifélaginu á föstudaginn...vonandi að það gangi vel! Ætla að reyna að skipuleggja verkefnið með þeim og svona :)
En já...ætla að fara snakke með mor
Salóme María Ólafsdóttir
04. október 2008 klukkan 20:55
Virðist sem allt sé að fara fjandans til á Íslandinu góða. Daglegar fréttir um efnahagskreppuna á Íslandi og að greyið krónan okkar sér í frjálsu falli. Ekki gaman...veit ekki hvað ég er búin að fara oft inná kaupþing.is og tjékka á stöðu krónunnar. Hún veikist bara með hverjum deginum...ég veit ekki hvað ég var að væla hérna seinast. Þá var krónan BARA 18.9 en í dag er hún 20.5 (+/-) og fór hæst í 21.7...já í dag er glatað að vera Íslenskur námsmaður í Kaupmannahöfn! En annars ætti ég sosum lítið að vera að kvarta..maður finnur til með fólkinu sem er að horfa uppá skuldabyrðina hækka með mánuðinum í eitthvað óraunhæft...já stundum er gott að eiga ekki neitt og skulda "lítið sem ekkert" hehehe. Annars á ég hrós skilið að hafa fest námslánin mín í danskri mynt en ekki í íslenskri þá á ég allavega alltaf fyrir leigunni sem er annars komin upp í 140.000 kr ef reiknað er með núverandi gengi!
Annars er ágætt að frétta héðan, skólinn á fullu eins og vanalega! Reyndar er aðeins vika í miðannafrí hjá okkur báðum sem er gott og ætlum við að hafa voða hugó meðan á því stendur :) Já ef þið bara vissuð!!!
Svo er ég búin að koma á fundi með tveimur prófessorum hjá DTU á mánudagsmorgunin!! Shit...er búin að vera að senda email hingað og þangað um fyrirspurn um verkefnið mitt síðast liðnar vikur, en hef ekki fengið engin svör fyrir á fimmtudaginn seinasta...frá honum Jesper vini mínum. Hann bað mig um að undirbúa smá kynningu um verkefnið og flytja það fyrir sig og Niels nokkurn sem ég var reyndar búin að senda email....shit þannig ég ætla að vera dugleg á morgun og búa til eitt stykki kynningu um verkefni sem ég hef lítið haft tíma til þess að kynna mér til hýtar...sem betur fer er Niels gaurinn nokkuð kunnugur framleiðslu Elkems þar sem hann hefur verið að vinna í samstarfi við það í nokkurn tíma. Þetta verður fróðlegt....en ég ætla að bara að vera ég sjálf og segja þeim það sem ég vill fá útúr verkefninu! Ætla líka að koma því á framfæri að það væri nú ekkert vera ef allar tilraunir og svona færu fram heima þannig ég gæti flutt búferðum á frón eigi síður en í lok Mars! ef ekki fyrr...þar sem Reynir er svona 99 % viss um að vera alkomin heim um áramótin.
Svo fékk ég email í dag frá eigandanum af íbúðinni...skúrkurinn sá arna ætlar að reyna að leika sama leik og seinast og framleiga okkur íbúðinni í gegnum fyrirtæki í stað þess að leigja okkur hana beint! Það gerir hann til þess að þurfa ekki að lækka leiguna og græðir því meiri pening af okkur...No way hosey ekki að ræða það! Ef hann vill ekki leigja okkur hana beint eða gera eitthvers konar samkonulag við okkur þar sem við eigum nú ekki eftir að vera hérna lengi þá segi ég bara íbúðinni upp með 3ja mánaða fyrirvara! Sjáum hvað hann segir....allavega ætla ég að kanna minn rétt hvað það varðar! Væri samt fínt...gætum við komið heim í jólafrí og flutt heim í janúar og ef ég þarf að vera hérna lengur hvað varðar verkefnið þá finn ég mér bara lítið herbergi sem ég get leigt í 2 mán eða svo!
Alveg komin með uppí kok...ekki nóg að maður sé í fullu í skóla með allar þær áhyggjur og stress sem honum fylgir, vera á kafi að finna sér prófessora og redda sér verkefni, með hugan heima vegna hugsanlegrar kreppu! nei þá þarf maður líka að vera vesenast í íbúðarmálum og nótabene vera þegar búin að tapa hálfri miljón vegna þeirra! Nei takk nenni þessu ekki lengur...
...en björtuhliðarnar á tilverunni eru þær samt að þetta er bara eitthvað svart tímabil sem fer að verða búið. Lífið er skemmtilegt og hefur uppá svo margt að bjóða þannig það er kannski ekki þess virði að vera velta sér uppúr svona smámunum eins og peningum og stressi!
Bið ykkur vel að lifa og hlakka til að sjá ykkur þegar þar að kemur :)
Salóme María Ólafsdóttir